Fyrirhuguð kaup á fasteignum

July 19, 2021 6:56 PM EDT

Alma íbúðafélag hf. hefur samþykkt tilboð um kaup á fasteignum að Elliðabraut 4-10, Reykjavík. Um er að ræða allt að 83 íbúðir sem afhendast á næstu 9 mánuðum. Kaupverðið er allt að 5.080 milljónir. Kaupin eru ýmsum fyrirvörum háð en stefnt er að því að aflétta þeim á næstu sex vikum. Kaupin eru í samræmi við stefnu félagsins um að stuðla að auknu framboði leiguhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu.

Nánari upplýsingar veitir Ingólfur Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri – netfang [email protected].




Serious News for Serious Traders! Try StreetInsider.com Premium Free!

You May Also Be Interested In





Related Categories

Globe Newswire, Press Releases

Related Entities

EIM Group